Módernismi í íslenskum bókmenntum.
Hér er vikiđ ađ helstu skáldverkum íslenskum, sem talin hafa veriđ módern framundir 1990. Bragarhćttir ljóđa eru ţví máli óviđkomandi, ţótt svokallađ “frjálst form” prósaljóđ og fríljóđ, hafi veri talin módernismi. Prósaljóđ urđu alţjóđleg tíska upp úr 1760, en auđséđ er innlend hefđ allt frá ţví fyrir aldamót, en einkum ber ţó á ţeim um 1920. En ţau ljóđ greinast varla frá öđrum, nema hvađ ekki er ţar fylgt reglubundinni hrynjandi, stuđlun né rími. Yfirleitt ríkir ljóđrćnt orđalag í prósaljóđum, myndir, líkingar og röklegt samhengi. Oft eru ţau dćmisögukennd, og mjótt á munum yfir til ćvintýra, sem margir sömdu á ţessum tíma. Fríljóđ ađgreinast frá prósaljóđum í ţví ađ skipta textanum í línur eftir merkingu, og komust í tísku á síđasta fjórđungi 19. aldar, nokkru síđar á Íslandi. Ennfremur eru svokölluđ „miđleitin" ljóđ ţessu óviđkomandi, ţví yfirleitt lúta ţau röklegu samhengi, hnitast um eitt atriđi. Fjarstćđast af öllu er ađ kalla bókmenntaverk módern vegna ţess ađ í ţeim birtist tiltekiđ hugarástand: einmanakennd eđa tilfinning fyrir tilgangsleysi lífsins. Ţvílíkar hugsanir hafa komiđ fram á ýmsum tímum og í ýmsu formi, en hér er um bókmenntastraum ađ rćđa, og ţá um bókmenntaleg sérkenni, ekki hugmyndir.
Módernismi birtist einkum í samhengisleysi, brotakenndri fram-setningu, og ţá virđist „Sorg" eftir Jóhann Sigurjónsson réttilega hafa veriđ taliđ fyrsta móderna Ijóđiđ á íslensku, ţađ mun hafa veriđ ort 1908-9. Ţar er stokkiđ milli andstćđra mynda kyrrláts unađar annarsvegar, en tryllings og eyđileggingar hinsvegar. Tengsl ţessa liggja helst í upphöfnu ljóđmáli og -myndum, auk persónu mćlanda. Jón Thoroddsen orti allt öđruvísi verk, tćpum áratug síđar, ţr er einföld og hversdagsleg frásögn á yfirborđinu, en einnig ţar er framsetningin rofin, mótsagnakennd. Áhrif norska skáldsins Sigbjřrn Obstfelder virđast ótvírćđ. Hinsvegar verđur varla um módernisma talađ hjá Jóhanni Jónssyni, en ţar koma helst til álita sérkennilegar myndir í einu ljóđi, „Söknuđi." Ţađ nćgir ţó ekki til ađ ţađ teljist módernt, í ljóđinu ríkir röklegt samhengi. Enn fráleitara vćri ađ orđa ljóđ Ţórbergs Ţórđarsonar frá öđrum áratug aldarinnar viđ módernisma, eđa „Hel" Sigurđar Nordals, ţótt ţađ hafi stundum veriđ gert. Ljóđ Halldórs Laxness bera hinsvegar flest merki expressjónisma í fyrirvaralausum stílrofum, oft spaugilegum. Ţar er samhengisleysi milli setninga. Ţađ er ţegar um miđjan 3. áratuginn, en Halldór gengur loks lengst allra í einum fimm kvćđum eđa kvćđabálkum frá árunum 1926-7. Ţau eru nánast óskiljanleg vegna ţess ađ orđ eđa setningar eru sett saman úr hlutum sem geta ekki átt saman, eđa ţá ađ árekstur verđur milli einstakra hluta kvćđis. Hér virđast ótvírćđ áhrif surrealisma, svo sem Halldór og vottađi sjálfur. Ţetta eru ekki fyrirferđarmiklir textar, en ţetta eru vönduđ ljóđ og mikil nýjung í íslenskum bókmenntum. Og ţau setja ađ mínu mati varanlegan svip á skáldverk Halldórs, ţar á ég viđ breytinguna frá Vefaranum mikla til skáldsagna Halldórs á 4. áratuginum.
Módernisma gćtir í íslenkum prósaverkum fljótlega eftir fyrri heimsstyrjöld. Fyrsta verkiđ af ţví tagi er Bréf til Láru frá l924,eftir Ţórberg Ţórđarson. Enda ţótt bókmenntaáhrif virđist útilokuđ, er ţađ áberandi líkt prósaverkum franskra surrealista frá 3. áratug aldarinnar í ţví, ađ framsetning er huglćg og mjög fjölbreytt ađ efni og stíl, ţar blandast saman ritgerđir, ek. ţjóđsögur, játningaskrif o.m.fl., en milli ţeirra er fyrirvaralaust stokkiđ úr einu í annađ. Ađ vissu marki er Vefarinn mikli frá Kasmír sem Halldór Laxness samdi 1925 ámóta sundurleitur, auk ţess sem ţar eru önnur framandleg atriđi: óţýddar klausur á erlendum málum, tilvísanir til lítt kunnra listaverka, o.fl. En annars er sú skáldsaga ađ mestu samkvćmt skáldsagnahefđ, í skipulegri frásögn og ţar eru stílandstćđur milli kafla, líkt og í Bréfi til Láru, en ţćr andstćđur eru út um allan textann í skáldsögum Halldórs á 4. áratugnum, andstćđur milli sögumanns og sögupersóna. Sögumađur er mjög áberandi međ sérkennileg sjónarmiđ og málfar heimsmanns. Sögu-persónur eru fjótt á litiđ ađ skáldsagnahefđ međ hver sitt sérkennilega fas og málfar. En í rauninni eru ţćr mjög ýktar, bćđi ţćr sem eru skrípamyndir og hinar sem göfgađri eru. Ţetta hvorttveggja er alkunna frá expressjónisma og einkum virđast mér ţessar stíland-stćđur framhald af stílrofum í ljóđum Halldórs. Ţetta einkennir skáldsögur Halldórs ć meir á 4. áratugnum. Ţví virđast mér ţćr mun róttćkari í módernisma en Vefarinn. En vissulega ráđast allar ţćr sögur af röklegri fléttu ađ skáldsagnahefđ. Hún rćđur líka smásögum Halldórs Stefánssonar. En jafnframt gćtir expressjónisma í nokkrum ţeirra frá fyrra hluta 4, áratugsins. Ţćr einkennast m.a. af runum stuttra málsgreina, sem oft eru slitur ein, líkt og í impressjónískum verkum Ţorgils gjallanda um aldamótin. Meira ber á andstćđum milli annarsvegar stfls greinaskrifa og annarlegra líkinga í lýsingum á sögusviđi annarsvegar, en hinsvegar skáldsagnahefđar í samtölum. Líkt og hjá Halldóri Laxness er sögumađur ágengur og sýnir oft mikla fjarlćgđ frá efninu og sérkennilegan stíl miđađ viđ persónur. Einnig hér eru ţćr af tagi skrípamynda frekar en sannfćrandi raunsćilegra persóna, sem ríkjandi tíska bauđ.
Ekki sé ég önnur merki módernisma fyrr en í lok seinni heims-styrjaldar međ ljóđum Steins Steinars, sem sumum var seinna safnađ í ljóđabálkinn Tíminn og vatniđ, er birtist fyrst 1948, en aftur ţriđjungi stćrri 1956. Tíminn og vatniö mótast fyrst og fremst af surrealisma, tengd eru í samsettu orđi eđa setningu orđ sem geta ekki átt saman. Ţađ er helst ađ hugblćr brúi biliđ milli ţessara mótsagna. Ţađ er af sama tagi og í ljóđum Halldórs Laxness frá 1927, en ekki verđa sén nein bein áhrif, og ţetta er miklu meira verk en ljóđ
Halldórs. Ţađ skapar annarlega heildarmynd af sérstćđum heimi og kyrrstćđum. En sá heimur verđur nćrtćkur og lifandi vegna ţess ađ ljóđabálkur ţessi er ţrunginn andstćđum tilfinningum mćlanda, tilfinningum sem örđugt eđa ómögulegt er ađ skilja röklega, eđa tengja umhverfinu í bálkinum.
Hjá atómskáldunum ber sáralítiđ á módernisma nema hjá Hannesi Sigfússyni, sem er skálda afkastamestur í módernri ljóđagerđ. Ţar er um ţrjár fyrstu ljóđabćkur hans ađ rćđa, 1949, 1951 og 1961. Hér ber raunar lítiđ á ţví mótsagnakennda orđalagi sem einkennir fyrrnefnd kvćđi Halldórs Laxness og Steins. Hinsvegar mótast báđir fyrstu bálkarnir, Dymbilvaka og Imbrudagar, af samhengisleysi milli erinda og stundum milli einstakra lína. Miklar andstćđur eru í stíl, enda ţótt hefđbundiđ ljóđmál ríki í bálkunum, bćđi í orđfćri, hrynjandi og stuđlun. Ţannig skynja lesendur textana sem ljóđ, en festast í mótsögnum og fá ekki botn í verkin. Ţetta samhengisleysi er af tagi expressjónisma, eins og hann birtist í flestum ljóđum Halldórs Laxness, m.a., en aftur er enginn beinn skyldleiki sjáanlegur, ekki heldur viđ Stein Steinarr,enda ţótt einnig hér sé dregin upp annarleg, órökleg heildarmynd af heimi mćlanda. Ţau ljóđskáld sem síđar koma til međ módernisma, eru ekki afkastamikil á ţví sviđi. Einna sérstćđastur er Jónas Svafár frá ţví um miđja öldina međ tvíbent orđalag sem riđlar allri rökhugsun.
A sama tíma, rétt fyrir miđja 20. öld, koma fyrstu prósaverk Thors Vilhjálmssonar. Ţađ eru örstutt prósaverk og ljóđ, og sum prósaverkanna hafa mörg framangreindra expressjónískra einkenna prósa, annarlegar líkingar, stuttar slitróttar málsgreinar og myndrćna framsetningu. Persónur eru frummyndakenndar, og textarnir eru torskildir röklega. Enda er stundum sérstaklega girt fyrir röklegan skilning međ endalausum keđjum af óskiljanlegum útskýringum, síđar međ keđjum af annarlegum myndrćnum viđlíkingum, sem fara hver í sína átt, hvorttveggja stöđvar framrás textans. Textinn er yfirleitt mjög myndrćnn, svo ađ hann dettur nánast sundur í augnabliksmyndir. Hugarflaums gćtir hér nokkuđ, eins og í stökum, örstuttum smásögum um eftir Jón Oskar (1952) og Geir Kristjánsson (1956). Steinar Sigurjónsson skrifar fyrstur íslendinga móderna skáldsögu, ástarsögu, 1958 (birtist aftur í breyttri og mjög aukinni gerđ undir öđrum titli 1967). Ţar er stokkiđ á milli hugarflaums ýmissa persóna, ţar sem ríkir talmál og hugmyndaheimur íslensks alţýđufólks. Grunneiningarnar eru í raun samkvćmt skáldsagnahefđ, en hiđ móderna viđ sögurnar er, ađ horfiđ er ógreinanlega frá einni persónu til annarrar, og söguţráđur skiptir litlu máli. Utkoman verđur einskonar heildarmynd af lífi ţessa fólks, líkt og hjá Guđbergi Bergssyni síđar, ţ.e. í Tómas Jónsson metsölubók (1966). Ţar er horfiđ frá röklegri fléttu og tímarás, en hugarflaumur mćlanda og vađall gefur dökka heildarmynd af umheimi hans og ţó mjög litríka, allt frá skrípamyndum til bölsýni. Persónur eru frummyndakenndari en hjá Steinari, ámóta og hjá Thor, en meiri skrípamyndir, ýktar svo sem hjá Halldórunum á 4. áratugnum. Ţađ er ţó fyrst og fremst međ skáldsögum Thors frá árinu 1968 ađ telja sem módernisminn verđur varanlegur í íslenskum prósabókmenntum, ţađ eru mörg verk, löng og vönduđ. Auk framangreindra einkenna stuttra prósaverka Thors, eru skáldsögur hans mjög fjölbreytilegar, einnig ađ stíl, svo ekki verđur séđ ađ einstök atriđi ţeirra rađist eftir neinu kerfi, og síst söguţrćđi, en ţau tengjast margvíslega innbyrđis međ ţráhyggjukenndum endurtekningum dramatískra mynda, sem eru ţó síbreytilegar. Hér er lengst gengiđ í módernisma í íslenskum prósaverkum. I ljóđum ber á ţessum tíma áfram svolítiđ á súrrealisma, hjá Jóhanni Hjálmarssyni og Baldri Óskarssyni á sjöunda áratugnum. Svava Jakobsdóttir skrifađi fáeinar smásögur um miđjan sjöunda áratuginn í köldum, nánast klíniskum stfl, ţar sem segir frá allskyns furđum í hversdagslífi kvenna. Utkoman verđur einskonar táknsögur sem sýna ţennan hversdagsleika sem fáránlegan. En ţetta gengur flest upp röklega og verđur naumast taliđ módernismi. Svolítiđ ber á surrealisma hjá Megasi í byrjun áttunda áratugsins, en meira er um expressjónísk stílrof. A ţeim tíma hefur Pétur Gunnarsson í meginatriđum sömu expressjónísku einkenni og Halldóramir tveir á 4. áratugnum, í vinsćlum skáldsögum sem í ađalatriđum fylgja röklegri framrás. Arni Larsson minnir töluvert á Thor Vilhjálmsson m.a. međ lang-sóttum líkingum, en auk ţess er hann međ fágćtt dćmi um súrrealískar setningar í prósa, ţćr eru óskiljanlegar vegna ţess ađ orđ innan setningar stangast á. Einar Guđmundsson gerđi prósaverk ţar sem skyndilega er stokkiđ frá einni frásögn í ađra, en milli ţeirra eru óglögg tengsl viđfangsefnis. Mikiđ ber ţar á eftirlíkingum algengustu texta, ţetta er í meginatriđum af sama tagi og Tómas Jónsson metsölubók, ţótt ekki sé um stćlingu ađ rćđa. Mikill vöxtur fćrist í móderna ljóđagerđ eftir 1980. Ţar ber töluvert á surrealisma, einkum í mótsagnakenndum ljóđmyndum, en mest er um samhengisleysi milli ljóđmynda, sem tengjast helst í sameiginlegum hugblć ljóđs eđa ljóđabálks.
Margskonar módernir straumar eru á ferđinni í íslenskum bókmenntum 20. aldar. Einna róttćkastur er surrealisminn, sérstakiega í ljóđum Halldórs Laxness upp úr miđjum 3. áratugnum, en ţó einkum Steins Steinars upp úr seinni heimsstyrjöld. Undir ţá stefnu mćtti líka heimfćra Bréf til Láru 1924, fyrsta móderna prósa-skáldritiđ. En ţađ er vegna sameiginlegra einkenna, en ekki vegna bókmenntaáhrifa, og vissulega er ţađ međ ailt öđru yfirbragđi en surrealismi í ljóđum, sem fćrđist mjög í vöxt međ Medúsumönnum um og uppúr 1980. Önnur helsta móderna stefna 20. aldar, expressjónisminn, er fyrirferđarmeiri í íslenskum bókmenntum. Ţar skal fyrst nefna flest ljóđ Haíldórs Laxness, önnur en fyrrtalin, en auk ţess skáldsögur hans, einkum eftir Vefarann mikla, smásögur Halldórs Stefánssonar frá fyrri hluta 4. áratugs og ljóđabálka Hannesar Sigfússonar um miđja öldina. Ţađ eru ţó önnur einkenni en á expressjónískum ljóđum. Áţekk einkenni eru á prósaverkum Thors Vilhjálmssonarfrá sama tíma og alla tíđ síđan, einnig á skáldsögum Guđbergs Bergssonar frá 7. áratugnum og Péturs Gunnarssonar á ţeim áttunda. En vitaskuld er hér margt svo sérkennilegt, ađ svona stimpill segir ekki mikiđ um verkin, ţađ á einkum viđ um skáldsögur Thors, frá lokum 7. áratugsins ađ telja. Auk ţess eru ýmis módern verk sem varla verđa flokkuđ til slíks undirstraums módernismans. Ţađ gildir bćđi um ţau fyrstu, eftir Jóhann Sigurjónsson og Jón Thoroddsen, um Jónas Svafár frá ţví um miđja öldina, og t.d. um Gyrđi Elíasson á síđustu árum. Módemismi birtist yfirleitt í smćrra móti í ljóđum en prósaverkum, og fylgir ţađ eđli bókmenntagreinanna. Í ljóđum eru andstćđur eđa sundurleysi ýmist innan málsgreinar, milli málsgreina, eđa erinda. En í prósaverkum eru andstćđurnar milli stćrri eininga, milli kafla eđa stílandstćđur persóna. Megineinkenni móderna prósarita er ágengur sögumađur, ólíkur sögupersónum, einkum í stíl.
Ţetta er langt tímabil, frá ţví um 1908 fram á miđjan níunda áratuginn. Ţađ vekur athygli, ađ sjaldnast verđur séđ neitt samhengi milli ţessara skálda. Ţađ er ekki fyrr en á 8. áratugnum međ prósahöfundum, ađ sjá má áhrif frá innlendum skáldverkum módernum. Augljóst er einnig, ađ yngstu ljóđskáldin ţekkja vel verk Steins og Hannesar Sigfússonar, en ekki verđur bent á bein áhrif. Annars virđist hver taka upp sinn ţráđ eftir ţví sem hann hefur kynnst erlendis frá og skapađ eftir. Einnig vekur athygli ađ hlé verđur á millum módernisma á 3. og 4. áratugnum, og ţess sem kemur fram um miđja öldina. Ţađ er reyndar alţjóđlegt fyrirbćri, og skýrist af ţví, hve tćpri fótfestu módernisminn náđi á f slandi - sem annarsstađar -á 3. áratugnum, ţví stóđst hann ekki ţau straumhvörf sem urđu á 4. áratugnum, frá módernisma til skáldverka sem áttu ađ gegna áróđurshlutverki, eđa a.m.k. vekja fólk til umhugsunar um samfélagsmál. I ţví efni ríkti hérlendis hefđ ćttjarđarljóđa og skáldsagna, en hvor tveggja hefđin mótađist á 19. öld. Módernismi blómstrar aftur í Ijóđum um miđja öldina og gćtir slitrótt síđan. I prósa kemur hann aftur fram á sama tíma, og fáeinir höfundar stunda hann eitthvađ áfram. Hvörf verđa síđan aftur um 1970, ţegar nýr straumur sósíalrealisma kemur frá Norđurlöndum yfir Ísland. Einnig urđu straumhvörfin í prósa, enda ţótt áfram séu skáld sem fást viđ módernisma, bćđi á áttunda áratugnum og síđar. Ţetta held ég ađ sé innan marka tilviljana, ţví ţađ er um svo fá skáld ađ rćđa, ađ tískubylgja einsog „opin ljóđ" á áttunda áratugnum getur ţurrkađ annađ út um hríđ. I módernum prósa kom sífellt ný örvun utanlands frá, auk ţess sem svo stórvirkur módernisti sem Thor Vilhjálmsson hefur haft áhrif til eftirbreytni, einsog hin víđfrćga Tómas Jónsson metsölubók Guđbergs. En í ljóđagerđ var módernismi eldri og kunnuglegri en í prósa, ţađ virđist skýríngin á ţví ađ hann rís ţar aftur upp međ miklum krafti um 1980.
Af ţessu yfirliti má sjá, ađ módemisminn í íslenskum bókmenntum var slitróttur straumur og sundurleitur. Margháttuđ erlend áhrif berast til Islands međ ýmsum skáldum, rétt eins og í ljóđum, skáldsögum og smásögum 19. aldar. Ţađ sýnir ţá einu sinni enn, ađ íslenskar bókmenntir eru ekki sjálfstćđ heild, sem lýtur innri ţróun fyrst og fremst, heldur eru ţćr hluti heimsbókmenntanna á hverjum tíma.